List án landamæra

List án landamæra

LIST ÁN LANDAMÆRA~  Tækifæri ekki takmarkanir  ~ Hvað er List án landamæraList án landamæra er listahátíð fjölbreytileikans. Allir sem vilja geta tekið þátt! Á hátíðinni vinnur listafólk saman að allskonar list með frábærri útkomu. Það hefur leitt til auðugra samfélags og aukins skilnings manna á milli.

Hátíðin er vettvangur eða þak yfir viðburði og hefur það að markmiði að vera síbreytileg og lifandi.
Samstarfsaðilar í stjórn Listar án landamæra eru: Fjölmennt - fullorðinsfræðsla fatlaðra, Átak - félag fólks með þroskahömlun, Hitt húsið, Landssamtökin Þroskahjálp, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum, Öryrkjabandalag Íslands og Bandalag íslenskra listamanna.Stjórnina mynda:
Helga Gísladóttir deildastjóri hjá Fjölmennt, Aileen Svensdóttir fyrir Átak, Ingólfur Már Magnússon fyrir Öryrkjabandalag Íslands, Friðrik Sigurðsson framkvæmdastjóri Þroskahjálpar, Edda Björgvinsdóttir fyrir Bandalag íslenskra listamanna, Jenný Magnúsdóttir verkefnastjóri hjá MSS  og Ásta Sóley Haraldsdóttir verkefnastjóri í Hinu húsinu. Margrét M. Norðdahl er framkvæmdastýra og eini starfsmaður hátíðarinnar.
Hátíðin er haldin fyrir styrkfé frá einka- og opinberum aðilum sem sótt er um á hverju ári.Af hverju?

Með því að skapa vettvang skapar maður tækifæri. Leiðir opnast þá jafnvel inn á aðrar brautir og með því að kynna saman hópa og einstaklinga opnast alltaf fleiri og fleiri dyr og tækifæri. List án landamæra er þannig hátíð þess mögulega, hátíð margbreytni og tækifæra fyrir alla í því góða samfélagi sem við byggjum MarkmiðMarkmið hátíðarinnar er fjölbreytni, að sjá tækifæri ekki takmarkanir, það er allra hagur.
Við viljum koma list fólks með fötlun á framfæri og koma á samstarfi á milli fatlaðs og ófatlaðs listafólks.
Sýnileiki ólíkra einstaklinga er mikilvægur, bæði í samfélaginu og í samfélagsumræðunni. Sýnileiki hefur bein áhrif á jafnrétti á öllum sviðum.
SaganÁkveðið var efna til þessarar hátíðar á Evrópuári fatlaðra árið 2003. Það gekk svo vel að áfram var haldið og árið 2012 verður níunda hátíðin haldin.

Hátíðin hefur breyst og þróast ár frá ári og fleiri eru að verða meðvitaðir um gildi hennar í listalífinu, bæði þátttakendur og njótendur.
Síðustu árin hefur listafólk og hópar frá Norðurlöndunum óskað eftir samstarfi og komið til Íslands og sýnt verk sín á hátíðinni. Hátíðin hefur meðal annars fengið stuðning frá Norrænu ráðherranefndinni og Norræna menningarsjóðnum.Fyrir utan beina listviðburði hefur List án landamæra líka stuðlað að umræðu m.a í samvinnu við við Háskóla Íslands um ímynd fatlaðra í listum og list fatlaðra. Hátíðin er haldin um allt land!
    Ávinningur
List án landamæra eykur jákvæða umfjöllun um fólk með fötlun í fjölmiðlum.List án landamæra leggur áherslu á jákvæða birtingarmynd  fólks með fötlun sem fullgildra þátttakanda.Listafólk og þátttakendur í hátíðinni eru fyrirmyndir – Áhrifamáttur fyrirmynda er mikill. List án landamæra eykur skapandi virkni og hvetur til þátttöku í menningarlífinu.Á hátíðinni skarast ósýnileg en áþreifanleg landamæri. List án landamæra skapar tækifæri.List án landamæra greiðir leiðir og tengir fólk saman. List án landamæra stuðlar að aukinni þekkingu sem leiðir af sér minni fordóma. Fjölbreytnin í mannlífinu er kostur sem nýtist okkur til nýrra uppgötvana og auðugra lífs.Ímynd og viðhorf eru nátengd, viðhorfin þurfa að breytast í átt til þess að meta mismunandi einstaklinga á mismunandi hátt. Að sjá auðlindina og ljósið í hverjum og einum og að í stað þess að sjá skerðingu að sjá þar náðargáfu. Tækifæri ekki takmarkanir.  Hagnýtar upplýsingarBloggsíða:  www.listanlandamaera.blog.isNetfang: listanlandamaera@gmail.comSími: 691-8756 og 411-5500Heimilisfang: Pósthússtræti 3-5, 101 RvkFramkvæmdastýra hátíðarinnar er Margrét M. Norðdahl

 

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband