4.1.2012 | 13:40
Austfirðingar og Héraðsbúar
GLEÐILEGT ÁR KÆRU VINIR!
Við hefjum nýja árið á kynningar og spjallfundi á Egilsstöðum.
Frábær hópur listafólks og skipuleggjenda hefur staðið fyrir viðburðum á Austurlandi síðustu ár. Gaman væri ef fleiri bættust í hópinn ; ) Endilega bregðið ykkur af bæ og kíkið á fund á morgun!
Fimmtudaginn 5.janúar klukkan 11 verður fundur í Sláturhúsinu menningarmiðstöð á Egilsstöðum.
Fundurinn er hugsaður til hugarflugs, umræðna og skoðanaskipta um
hugmyndir fyrir hátíðina 2012.
Á fundinum verður farið yfir hvað hefur verið að gerast. Hvað liggur fyrir í vor?
Og síðast en ekki síst: Hvað vilja þátttakendur og skipuleggjendur sjá gerast.
Við leitum að atriðum og þátttakendum, til þátttöku í hátíðinni 2012.
Listafólk, aðstandendur listafólks, listnemar, leiðbeinendur, gallerýrekendur, leikhússtjórar, tónleikahaldarar, hugmyndasmiðir, smiðir og aðrir sem áhuga hafa eru sérstaklega hvattir til að mæta.












Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.