30.10.2009 | 13:48
List án landamæra 2010 - Vilt þú vera með?
Nú er undirbúningur hafinn fyrir List án landamæra 2010.
Sem fyrr verður hátíðin haldin um land allt á tímabilinu frá seinni hluta aprílmánaðar og fram í miðjan maí. Nákvæm dagsetning opnunarhátíðar eða einstakra viðburða liggur ekki enn fyrir en mun ráðast á næstu dögum og vikum.
Ef þú hefur áhuga á þátttöku eða þekkir einhvern sem gæti haft áhuga þá máttu gjarnan setja þig í samband við okkur. Bæði er möguleiki að taka þátt í einhverjum af þeim viðburðum sem við verðum með á dagskrá eða koma með nýja viðburði inn í dagskrána.
Hátíðin er hugsuð sem samstarfsverkefni og því ræðst dagskráin af þátttakendum.
Hugmyndir að viðburðum eru: Opin hús, litlar og stórar myndlistarsýningar, tónleikar eða tónlistarflutningur, upplestur, þátttaka í samsýningum, leiklistarviðburðum og svo mætti áfram lengi telja. Við munum aðstoða eftir þörfum við skipulag og að finna aðstöðu fyrir viðburði.
List án landamæra
Sími: 691-8756
Netfang: listanlandamaera@gmail.com
Netsíða: www.listanlandamaera.blog.is

Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.